„Þetta er búið í bili“

Eldgosinu við Stóra-Skógfell lauk í gær.
Eldgosinu við Stóra-Skógfell lauk í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Lítil sem engin skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaganum en Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær um að eldgosinu við Stóra-Skógfell væri lokið.

„Það er engin sjáanleg virkni í gígnum svo þetta er bara búið í bili,“ segir Bjarki Kaldalón Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Hann segir að landris sé hafið að nýju í Svartsengi en eldgosið sem hófst þann 22. ágúst stóð yfir í 14 daga og var þriðja lengsta eldgosið af þeim sex sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni frá því í desember 2023.

Níunda eldgosið á þremur árum

Í tilkynningu frá Veðurstofunni í gær kom fram að út frá líkanreikningum er ljóst að aldrei hefur jafn mikið magn kviku komið upp á yfirborðið frá því að jarðhræringarnar hófust haustið 2023.

Eldgosið við Stóra-Skógfell var níunda eldgosið á Reykjaskaganum á þremur árum og það sjötta í röð eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni á einungis átta mánuðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert