Þrír fluttir á sjúkrahús og aðgerðum lokið

Búið er að opna Suðurlandsveg við Heiðmerkurveg/Rauðhóla.
Búið er að opna Suðurlandsveg við Heiðmerkurveg/Rauðhóla. Ljósmynd/Aðsend

Aðgerðum viðbragðsaðila við afleggjarann við Heiðmörk er lokið eftir árekstur á milli fólksbifreiðar og rútu fyrr í dag.

Þetta staðfestir Guðjón Ingvars­son, vakt­stjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborg­ar­svæðinu, í samtali við mbl.is. 

Hann segir þrjá hafa verið flutta á sjúkrahús eftir áreksturinn með minniháttar áverka. 

Búið er að opna Suðurlandsveg við Heiðmerkurveg/Rauðhóla samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Loka þurfti veginum fyrr í dag vegna árekstursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert