Alþingi býður í heimsókn

Alþingishúsið.
Alþingishúsið. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Almenningi gefst kostur á að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis, næstkomandi laugardag.

Fram kemur á vef Alþings að nauðsynlegt sé að skrá sig fyrirfram í leiðsögn um Alþingishúsið en ekki þarf að skrá sig í heimsókn í Smiðju.

Opið hús verður á fyrstu hæð Smiðju kl. 14-17. Til sýnis verða munir sem fundust við fornleifarannsóknir á Alþingisreit áður en húsið var byggt og fjölbreytt fræðslu- og kynningarefni verður sýnt á skjám. Forseti Alþingis og fleiri þingmenn verða á staðnum.

Þá verður boðið upp á leiðsögn um Alþingishúsið kl. 9-12 og 14-17. Hleypt er inn í leiðsögn um þinghúsið á 20 mínútna fresti, hámark 35 manns í senn, og tekur hver leiðsögn 30 mínútur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert