Mikill erill hjá sjúkraflutningamönnum

Það var mikið að gera hjá skjúraflutningamönnum í gærkvöld og …
Það var mikið að gera hjá skjúraflutningamönnum í gærkvöld og í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Töluverður erill var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í gærkvöld og í nótt en boðanir á sjúkrabíla voru 116 talsins og þar af voru 30 eftir miðnætti.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var mikið að gera hjá sjúkraflutningamönnum en mikill erill var í bænum með tilheyrandi slagsmálum en engin alvarleg meiðsli hlutust af þeim.

Það varð bílslys á Vesturlandsvegi en að sögn varðstjóra reyndist það minniháttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert