Reykjanes og Vatnajökull fá alþjóðlega viðurkenningu

Náttúrufræðistofnun tilnefndi eldstöðina Reykjanes.
Náttúrufræðistofnun tilnefndi eldstöðina Reykjanes. mbl.is/Árni Sæberg

Reykjanes og Vatnajökull eru komin á lista Alþjóðajarðfræðisambandsins (IUGS) um 100 jarðminjastaði á jörðinni.

Þetta var kynnt á alþjóðlegri jarðfræðiráðstefnu sem haldin var nýverið í Busan í Suður-Kóreu og Náttúrufræðistofnun greinir frá á heimasíðu sinni.

Markmið með útgáfu jarðminjalista er að vekja athygli á mikilvægi jarðminja til fræðslu og þekkingar og stuðla að varðveislu merkra jarðminjastaða.

Þurfa að hafa mikið alþjóðlegt vísindagildi

Þetta er í annað sinn sem IUGS tekur saman lista yfir merka jarðminjastaði. Ráðgert er að listar IUGS verði þrír og mun sá þriðji birtast á árinu 2026. Til að komast á jarðminjalista IUGS þurfa jarðminjastaðir að hafa mikið alþjóðlegt vísindagildi.

Náttúrufræðistofnun tilnefndi eldstöðina Reykjanes á jarðminjalista IUGS sem alþjóðlegan mikilvægan jarðminjastað vegna tengingar hans við Mið-Atlantshafshrygginn.

Alþjóðlegt samband landmótunarfræðinga tilnefndi Vatnajökul sem alþjóðlega mikilvægan jarðminjastað vegna samspils jökuls og eldvirkni.

Jökulhlaup og sandar eru fágæt fyrirbæri í heiminum og við Vatnajökul finnast dæmi um þau sem eru á meðal þeirra bestu.

Vatnajökull er þjóðgarður og á heimsminjaskrá UNESCO.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert