Einn handteknu reyndist hafa strokið frá Stuðlum

Tveir hinna handteknu voru undir 18 ára aldri.
Tveir hinna handteknu voru undir 18 ára aldri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn þeirra sem handteknir voru í tengslum við rannsókn á hnífstungumáli sem kom upp í nótt reyndist hafa strokið frá Stuðlum og hefur verið fluttur þangað aftur. Hann er undir 18 ára aldri.

Þetta staðfestir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Tveir aðrir sem handteknir voru í tengslum við málið eru enn í haldi lögreglu, en tekin verður skýrsla af þeim síðar í dag.

Sá sem fyrir árásinni varð hlaut minniháttar áverka og leitaði aðhlynningar á spítala í nótt. Hann er útskrifaður þaðan, að sögn Ásmundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert