Furðar sig á afstöðu lyfsalans

„Þetta er þjónusta sem við viljum hafa innan seilingar. Það …
„Þetta er þjónusta sem við viljum hafa innan seilingar. Það eru sjálfsögðu réttindi að geta sótt þessa þjónustu sem aðra um skamman veg en ekki langan,“ segir bæjarstjórinn. Samsett mynd/Eggert/sisi

„Þetta eru alls ekki góðar fréttir. Ég mun heyra í forsvarsmönnum þessarar lyfjakeðju,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.

Líkt og fram kom í Morgunblaðinu í gær er óvissa um framtíð apóteksins á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi. Kjartan Örn Þórðarson, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu, sem rekur verslanir Apótekarans, upplýsti að ákvörðun um framtíð þess yrði tekin og kynnt á næstu dögum.

Framkvæmdir ekki hafnar

Apótekið hefur verið lokað frá því í vor er boðaðar voru endurbætur á húsnæðinu. Í tilkynningu til viðskiptavina kom fram að til stæði að apótekið yrði opnað á ný í haust en framkvæmdir hafa ekki enn hafist.

Þór segir að mönnum hafi tekist að reka apótek í umræddu húsnæði í rúm 40 ár. Furðulegt megi teljast ef það sé ekki lengur hægt í fimm þúsund manna sveitarfélagi en auk Seltirninga sæki fjölmargir Vesturbæingar þjónustu á Eiðistorg.

„Þetta er þjónusta sem við viljum hafa innan seilingar. Það eru sjálfsögðu réttindi að geta sótt þessa þjónustu sem aðra um skamman veg en ekki langan,“ segir bæjarstjórinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert