Kæra virkjunarleyfi fyrir vindorkuver

Vindmyllurnar sem reisa á í Búrfellslundi verða engin smásmíði. Með …
Vindmyllurnar sem reisa á í Búrfellslundi verða engin smásmíði. Með spaðana í hæstu stöðu verða þær um 150 metrar háar. mbl.is/Sigurður Bogi

Skeiða- og Gnúpverjahreppur lagði í dag inn kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem farið er fram á að virkjunarleyfi sem Orkustofnun gaf út fyrir vindorku­verið Búr­fells­lund verði fellt úr gildi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarstjórn.

„Að mati Skeiða- og Gnúpverjahrepps er málsmeðferðin á öllum stigum málsins ekki í samræmi við lög. Þar er átt við afgreiðslu Alþingis, málsmeðferð Skipulagsstofnunar ásamt umfjöllun Orkustofnunar áður en virkjanaleyfið var gefið út,“ segir í tilkynningunni. 

Fyrr í dag var fram­kvæmda­leyfi til handa Lands­virkj­un­ar vegna vindorku­versins samþykkt af sveit­ar­stjórn Rangárþings ytra. Orkustofnun gaf út virkjunarleyfi 12. ágúst. 

Mótmælt á öllum stigum

Sveitarfélagið hefur mótmælt fyrirhuguðum Búrfellslundi á öllum stigum í málsmeðferðinni frá því Alþingi tók ákvörðun um að setja Búrfellslund í nýtingarflokk í rammaáætlun í júní 2022.

„Mikilvægt er að uppbygging orkumannvirkja sé unnin í sátt og samráði við nærsamfélagið og nauðsynlegt er að klára stefnumörkun í vindorku ásamt tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga áður en fyrsta vindorkuverið verður byggt á Íslandi,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert