Þúsundir barna bíða og ráðherra svarar ekki

Ásmundur Einar hefur ekki svarað bréfi umboðsmanns sem sent var …
Ásmundur Einar hefur ekki svarað bréfi umboðsmanns sem sent var fyrir sex mánuðum. Samsett mynd

Það er með öllu óviðunandi að börn þurfi að bíða jafn lengi eftir þjónustu og raun ber vitni.

Þetta er mat umboðsmanns barna, sem segir að löng bið eftir þjónustu við börn hafi verið viðvarandi vandamál til margra ára.

Til að varpa ljósi á stöðuna hefur umboðsmaður staðið fyrir reglulegri upplýsingaöflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu hjá tilteknum aðilum.

Að því er umboðsmaður greinir frá er staðan meðal annars þessi:

Biðtíminn áætlaður 34 mánuðir

  • Alls bíða 2.020 börn eftir þjónustu Geðheilsumiðstöðvar barna.
  • 1.727 börn hafa beðið þar lengur en þrjá mánuði.
  • Áætlaður biðtími eftir athugun vegna gruns um ADHD er að minnsta kosti 24 mánuðir.
  • Biðtíminn er áætlaður 34 mánuðir vegna gruns um einhverfu.

Meðalbiðtími yfir 20 mánuðir

  • Alls bíða 626 börn eftir greiningu hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð, en stofnunin á að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði.
  • Meðalbiðtími er yfir 20 mánuðir.
  • Þá hafa 553 börn beðið lengur en þrjá mánuði.

47 börn bíða eftir BUGL

  • Hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins bíða 209 börn eftir að komast að hjá sálfræðingi og meðalbiðtíminn er 203 dagar.
  • Hjá göngudeild barna- og unglingageðdeildar Landspítalans bíða 47 börn og meðalbiðtími er 1,8 mánuðir. 
  • Þrjú börn hafa beðið lengur en þrjá mánuði.
  • Alls bíða 100 börn eftir þjónustu Heilsuskólans, meðalbiðtími nemur 12 mánuðum og 84 börn hafa beðið lengur en þrjá mánuði. Þar eru fjölskyldum kenndar aðferðir til að takast á við þyngdarstjórnun og viðhalda breytingum ásamt því að bæta lífsgæði til lengri tíma.

Umboðsmaður barna tekur þessar upplýsingar saman á um sex mánaða fresti. Eftir síðustu samantekt í febrúar sendi umboðsmaður þremur ráðherrum bréf, þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvernig ráðherrarnir hyggist bregðast við ástandinu.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra svaraði bréfinu 9. júlí. Ekkert svar hefur borist frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra.

Sex mánuðir án nokkurra svara

Í bréfi umboðsmanns til Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, þann 11. mars, segir:

„Það er ljóst að ef lög um samþætta þjónustu eiga að geta náð markmiðum er snúa að snemmtækum stuðningi þarf að koma í veg fyrir að langir biðlistar myndist eftir þjónustu, en það er nú þegar ein helsta fyrirstaða þess að börn fái þann stuðning sem þau þurfa á að halda þegar þörf eftir stuðningi skapast.

Í ljósi framangreinds óskar umboðsmaður barna eftir afstöðu mennta- og barnamálaráðherra til þess hvort tilgreindur biðtími barna samræmist þeim almennu viðmiðum sem embætti landlæknis hefur sett um bið eftir heilbrigðisþjónustu en samkvæmt þeim á skoðun hjá sérfræðingi að fara fram innan 30 daga frá því að beiðni er lögð fram og meðferð að fara fram innan 90 daga frá greiningu.

Einnig óskar umboðsmaður eftir afstöðu ráðherra til þess hvort það samræmist lögum nr. 86/2021 að börn þurfi að bíða í marga mánuði eftir þjónustu. Að lokum óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um með hvaða hætti ráðherra hafi í hyggju að bregðast við þessari stöðu.“

Í dag eru liðnir sex mánuðir og ráðherra hefur ekki enn svarað bréfinu.

Vakið athygli fyrir sinnuleysi

Þetta vekur athygli ekki síst í ljósi þess að umboðsmaður sendi ráðherranum annað bréf þann 23. júlí, en það varðaði óljósar áætlanir hans um nýtt námsmat í grunnskólum landsins og innleiðingu þess.

Því bréfi svaraði ráðherrann ekki fyrr en á síðasta degi fjögurra vikna svarfrests.

Töldu svör ráðherrans um eina blaðsíðu og báru þess nokk­ur merki að hafa verið unn­in í flýti, einkum þegar litið var til frestsins sem gefinn var.

Slógu þau enda ekki á áhyggjur umboðsmanns, eins og rakið var í svarbréfi nokkrum dögum síðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert