Kölluð til vegna líkamsárásar

Báðir eru grunaðir um að hafa veitt hinum áverka.
Báðir eru grunaðir um að hafa veitt hinum áverka. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í nótt vegna líkamsárásar, þar sem tveir höfðu þá átt í slagsmálum.

Eru báðir að sögn lögreglu grunaðir um að hafa veitt hinum áverka. Ritaði lögregla skýrslu vegna málsins, að því er fram kemur í dagbók hennar.

Þá var ökumaður stöðvaður grunaður um ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Lögregla hafði þá leitað viðkomandi vegna annars máls og var hann vistaður í fangageymslu í þágu rannsókna þess máls.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert