Lagareldisfrumvarpið ekki lagt fram

Við lok síðasta þingveturs sagði Bjarni að það yrðu vonbrigði …
Við lok síðasta þingveturs sagði Bjarni að það yrðu vonbrigði ef Bjarkey myndi ekki leggja fram frumvarpið á þinginu sem nú er hafið. Samsett mynd

Frum­varp Bjarkeyj­ar Olsen Gunnarsdóttur mat­vælaráðherra um lagar­eldi verður ekki lagt fram á þessum þingvetri. Á síðasta þingi sagði forsætisráðherra að það yrðu vonbrigði ef hún legði ekki frumvarpið fram.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir þingveturinn, sem er einnig síðasti þingvetur núverandi ríkisstjórnar, er hvergi að sjá frumvarp Bjarkeyjar um lagareldi.

Á lokametrum síðasta þings varð ljóst að samstaða var ekki innan ríkisstjórnarinnar um málið og því tókst ekki að klára málið á þeim þingvetri.

Bjarni sagði að það yrðu vonbrigði ef málið kæmi ekki

Í kjölfar þess að það varð ljóst í júní sagði Bjarkey í samtali við mbl.is að henni þætti ólíklegt að hún myndi leggja frumvarpið fram á haustþinginu.

Leitað var til Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra með viðbrögð við oðrum hennar og þá sagði hann:

„Það væru von­brigði ef málið kæmi ekki aft­ur fram. Ég ætla ekk­ert að segja annað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert