Skiltabrýr vernda göngubrúna

Myndin er tekin frá Snekkjuvogi yfir að Tranavogi við hina …
Myndin er tekin frá Snekkjuvogi yfir að Tranavogi við hina nýju Vogabyggð. mbl.is/sisi

Hafin er vinna við uppsetningu göngu- og hjólabrúar yfir Sæbraut. Helsta hlutverk hennar verður að tryggja gönguleið skólabarna í hinni nýju Vogabyggð til og frá Vogaskóla.

Börnin þurfa að fara yfir mjög fjölfarna hraðbraut sem Sæbrautin er. Því hefur Reykjavíkurborg skipulagt skólaakstur undanfarna vetur og svo verður áfram þennan veturinn.

Skiltabrýr verða settar upp sitt hvorum megin við brúna til að koma í veg fyrir að há ökutæki rekist upp í hana. Eins og gefur að skilja gæti það haft mjög alvarlegar afleiðingar ef slíkt gerðist.

Vegagerðin stendur fyrir verkinu í samvinnu við Reykjavíkurborg. Brúin verður staðsett milli Tranavogs og Snekkjuvogs, um það bil miðja vegu milli gatnamóta Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar.

Verkið hefur tafist nokkuð vegna vandræða varðandi útboð. Þegar það var fyrst boðið út sumarið 2023 barst einungis eitt tilboð. Var það langt yfir kostnaðaráætlun og því var tilboðinu hafnað. Útboð númer tvö var fellt niður því ákveðið var að bæta inni í það árekstrarvörnum.

Svona lítur mannvirkið út. Há lyfta verður Tranavogsmegin.
Svona lítur mannvirkið út. Há lyfta verður Tranavogsmegin. Tölvumynd/Verkís

Tókst í þriðju tilraun

Það var loks í þriðju tilraun að Vegagerðin taldi sig fá viðunandi tilboð. Í lok júlí sl. var skrifað undir samning við Ístak um að vinna verkið. Samningsupphæðin var 290 milljónir króna. Þrjú tilboð bárust í verkið og var Ístak lægst. Kostnaðaráætlun var 218 milljónir.

Upphaflega voru verlok áætluð um mánaðamótin nóvember/desember nk. en þeim hefur verið frestað fram í apríl 2025.

Brúin verður yfirbyggð og við báða enda hennar verður stigahús og lyfta. Góð lýsing verður á og við brúna. Verkís hannaði mannvirkið og VBV verkfræðistofa hefur eftirlit og umsjón með verkinu fyrir hönd verkkaupa.

Umfjöllunina má nálgast í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert