Á 120 km/klst hraða, ölvaður og próflaus

Lögreglan hafði afskipti af tveimur ökumönnum í gær sem keyrðu …
Lögreglan hafði afskipti af tveimur ökumönnum í gær sem keyrðu undir áhrifum. Ljósmynd/Colourbox

Tveir voru handteknir í gær grunaðir um sölu og dreifingu fíkniefna og vistaðir í fangaklefa. Skömmu síðar eftir skýrslutökur voru viðkomandi látnir lausir. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir helstu verkefni frá því klukkan 17 í gær.

Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni sem ók á 120 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Reyndist ökumaðurinn ölvaður auk þess sem búið var að svipta hann ökuréttindum.

Annar ökumaður var einnig stöðvaður í akstri, grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Reyndist hann einnig hafa verið sviptur ökuréttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert