Alþingi býður í heimsókn

Nýjir stólar í þingsal Alþingis sem tóku við að af …
Nýjir stólar í þingsal Alþingis sem tóku við að af stólum sem höfðu verið í notkun frá 1986. mbl.is/Eyþór Árnason

Almenningi gefst kostur á að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis, á morgun. Viðburðirnir eru liðir í dagskrá 80 ára afmæli lýðveldisins.

Boðið verður upp á leiðsögn um Alþingishúsið kl. 9–12 og 14–17. Hleypt verður inn í húsið á 20 mínútna fresti, hámark 35 manns í senn, og tekur hver leiðsögn 30 mínútur.

Gengið er inn um aðalinnganginn í Skála, við hlið Alþingishússins. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram.

Skráning í leiðsögn

Þá verður opið hús á fyrstu hæð Smiðju kl. 14–17. Til sýnis verða munir sem fundust við fornleifarannsóknir á Alþingisreit áður en húsið var byggt og fjölbreytt fræðslu- og kynningarefni verður sýnt á skjám.

Gengið er inn um aðalinngang Smiðju á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis. Ekki þarf að bóka sig sérstaklega í opna húsið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert