Þykir mótmæli Eflingar afar þungbær

Frá mótmælum Eflingar fyrir utan Ítalíu.
Frá mótmælum Eflingar fyrir utan Ítalíu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Elvar Ingimarsson, eigandi Ítalíu, segir að sér þyki afar þungbært að stéttarfélagið Efling hafi efnt til mótmæla fyrir utan veitingastaðinn og persónugert þau með myndum af sér. Tilgangurinn virðist vera að skaða reksturinn sem mest þannig að ekki sé hægt að vinna að lausn mála og gera upp skuldir.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu Elvars.

Hann segir fyrsta áfallið eftir að hann keypti veitingastaðinn á síðasta ári hafa verið að þurfa að flytja í nýtt húsnæði. Hann hafi sömuleiðis enga styrki fengið vegna Covid-19.

„Það hefur verið mjög krefjandi að reka veitingastaði í núverandi rekstrarumhverfi, sem einkennist af háum vöxtum, verðbólgu þar sem aðföng hafa hækkað stjórnlaust og hækkandi launakostnaði,“ segir hann í yfirlýsingunni.

Þar viðurkennir hann að hafa lent í erfiðleikum með að greiða laun til starfsfólks en nefnir einnig að erfitt hafi reynst að fá hæft fólk til starfa.

„Sem stendur skuldum við um 2 milljónir króna í ógreidd laun sem samsvarar um 2% af þeim launum sem hafa verið til greiðslu á þessu ári. Vinnan við að leysa úr því er í fullum gangi og viljum við biðja um vinnufrið á meðan sú vinna er í gangi,“ segir hann og bætir við að fleiri rekstraraðilar í veitingageiranum glími við fjárhagsvanda.

Frá mótmælunum.
Frá mótmælunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Yfirlýsingin í heild sinni:

„Vegna frétta um rekstur veitingastaðarins Ítalíu er rétt að eftirfarandi komi fram.

Ég undirritaður Elvar Ingimarsson kaupi veitingastaðinn Ítalíu í maí 2023.  Fljótlega eftir kaupin kom fyrsta áfallið við reksturinn þegar húseigandi á Laugavegi ákvað að endurnýja ekki leigusamning við veitingastaðinn. Af þeim sökum þurftum við að flytja í árslok 2023 og flutti veitingastaðurinn á Frakkastíg. Það er alltaf erfitt að flytja rótgrónn veitingastað í nýtt húsnæði .

Það er líka rétt að árétta að við höfum enga opinbera styrki fengið vegna Covid eins og fram hefur komið.  Þeir styrkir hafa runnið til fyrri eiganda.

Það hefur verið mjög krefjandi að reka veitingastaði í núverandi rekstrarumhverfi, sem einkennist af háum vöxtum, verðbólgu þar sem aðföng hafa hækkað stjórnlaust og hækkandi launakostnaði.

Erfiðleikar við greiðslu launa

Það er rétt sem komið hefur fram að við höfum lent í nokkrum erfiðleikum varðandi launagreiðslur til starfsfólks og vegna launatengdra gjalda.  Eins hefur verið erfitt að fá hæft fólk til starfa og hefur það leitt til þess að starfsmannavelta hefur verið meiri en æskilegt er.  Sem stendur skuldum við um 2 milljónir króna í ógreidd laun sem samsvarar um 2% af þeim launum sem hafa verið til greiðslu á þessu ári. Vinnan við að leysa úr því er í fullum gangi og viljum við biðja um vinnufrið á meðan sú vinna er í gangi.

Við erum langt í frá eini rekstraraðili í veitingageiranum sem glímir við fjárhagsvanda og bera tölur um gjaldþrot þess skýr merki.  Við ætlum að reyna að takast á við vandann og leysa hann en ekki færa hann á nýja kennitölu eins og tíðkast gjarnan.

Það er mér afar þungbært að stéttarfélagið Efling kjósi að efna til mótmæla fyrir utan veitingastað okkar og persónugera þau með myndum af mér. Tilgangurinn er, að manni sýnist, að skaða reksturinn sem mest þannig að okkur sé ekki kleift að vinna að lausn þessara mála og gera upp útistandandi skuldir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert