Virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun gefið út

Fyrirhuguð Hvammsvirkjun.
Fyrirhuguð Hvammsvirkjun. Ljósmynd/Landsvirkjun

Orkustofnun hefur gefið út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá og er stefnt að því að virkjunin taki til starfa fyrir árslok 2028.

Í kjölfar leyfisins sækir Landsvirkjun um framkvæmdaleyfi til bæði Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, en mannvirki tengd virkjuninni verða í báðum sveitarfélögunum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Sigölduvirkjun stækkar

Þar segir að Orkustofnun hafi jafnframt gefið út leyfi til stækkunar Sigölduvirkjunar úr 150 MW í 215 MW með því að bæta fjórðu vélinni við. Þar sækir Landsvirkjun um framkvæmdaleyfi til Ásahrepps og Rangárþings ytra.

„Stækkun Sigölduvirkjunar eykur afl og sveigjanleika í raforkukerfinu. Með aflaukningunni eykst orkuvinnslugeta stöðvarinnar aðeins lítillega, nema til komi meira rennsli með aukinni bráðnun jökla eða aukinni úrkomu,“ segir í tilkynningunni og er þá tekið fram að áætlað sé að stækkun verði lokið í lok árs 2027.

Segir þá að Hvammsvirkjun verði 740 GWst, 95 MW að stærð, sem þýðir að hún getur unnið svipaða orku og jarðvarmavirkjunin Þeistareykir á Norðurlandi gerir nú.

Framkvæmdir þurfi að hefjast sem fyrst

Í tilkynningunni kemur fram að Orkustofnun hafi áður gefið út virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar í desember 2022. Það hafi hins vegar verið kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Var þar öllum álitamálum vísað frá nema einu sem snéri að því að ekki hefði verið tryggt að útgáfa virkjunarleyfisins væri í samræmi við vatnaáætlun, sem gefin hafði verið út í fyrsta skipti í apríl 2022.

Var það niðurstaða nefndarinnar að fella virkjunarleyfið úr gildi en Umhverfisstofa hefur síðan veitt heimild til breytinga á vatnshloti.

„Vegna þeirra tafa sem orðið hafa í leyfisveitingaferlinu þurfa framkvæmdir að hefjast sem allra fyrst, eigi það takmark að nást að stöðin skili orku í árslok 2028. Vegagerðin er langt komin með endurbætur á Hvammsvegi og undirbýr lagningu nýs Búðafossvegar og brúar yfir Þjórsá,“ segir í tilkynningunni.

Er þar enn fremur nefnt að Landsvirkjun muni hefjast handa við gerð aðkomuvegar í framhaldi af Hvammsvegi og gröft frárennslisskurðar, þaðan sem efni fæst í Búðafossveg, fljótlega eftir að framkvæmdaleyfi sveitarfélaganna liggja fyrir.

Einnig verði lagður grunnur að vinnubúðum og lagt veitukerfi fyrir þær og framkvæmdasvæðið allt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert