Rannsaka rútubrunann

Rútan varð alelda á skömmum tíma.
Rútan varð alelda á skömmum tíma. Ljósmynd/Malín Brand

Bruninn sem kom upp í rútu í Skutulsfirði í gær verður rannsakaður segir Helgi Jensson, lögreglustjórinn á Vestfjörðum, í samtali við mbl.is.

Aðspurður segist Helgi ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Eldur kom upp í rútu sem keyrði um Tungudal í Skutulsfirði á Vestfjörðum í gær. Rútan varð alelda á skömmum tíma.

Sjónarvottur sagði í samtali við mbl.is í gær að afar litlu hafi munað að rútan hefði farið að loga í Vest­fjarðagöng­um.

Eldurinn kom upp síðdegis í gær.
Eldurinn kom upp síðdegis í gær. Ljósmynd/Þórður Bragason
Rútan var í Skutulsfirði er bruninn kom upp.
Rútan var í Skutulsfirði er bruninn kom upp. Ljósmynd/Malín Brand
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert