Tilkynnt var um innbrot í tvær bifreiðar og eitt fyrirtæki í dag. Málin eru í rannsókn.
Einnig barst tilkynning um þjófnað úr verslun. Gerandinn var á staðnum og var málið afgreitt þar, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17 í dag.
Eitthvað af málum komu upp á vaktinni þar sem lögreglan aðstoðaði við að vísa fólki út, eða vegna ölvunar og veikinda.
Tveir ökumenn voru jafnframt handteknir. Annar reyndist keyra sviptur ökuréttindum og í ljós kom að um ítrekað brot var að ræða. Hinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og fyrir að aka þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökuréttindum.