Karlmaður sem er í haldi vegna gruns um að hafa orðið stúlku á grunnskólaaldri að bana er faðir stúlkunnar.
Þetta herma heimildir mbl.is.
Maðurinn var handtekinn við Krýsuvíkurveg í gærkvöldi en lögregla hafði veður af málinu um kvöldmatarleytið.
Lögregla hefur í dag verið að störfum á vettvangi við Krýsuvíkurveg norðan Kleifarvatns.