„Það voru 260 börn í keppninni hjá okkur núna, sem er algjört met,“ segir Einar G. Karlsson, formaður reiðhjólafélagsins Tinds, sem í samvinnu við Krónuna stóð fyrir árlegu Krónumóti Tinds hjólreiðafélags og Hjólaskólans í Öskjuhlíð í gær.
Þar fengu börn á aldrinum 2-12 ára að spreyta sig.
„220 börn tóku þátt í keppninni í fyrra, sem var líka met, en þetta er í sjöunda skiptið sem við höldum hana. Yngstu börnin fengu aðstoð foreldranna á sparkhjólunum sínum og gleðin skein úr hverju andliti.
Síðan fengu öll börnin númer á hjólin sín og ávextir og drykkir voru í boði fyrir alla og BMX Bros héldu hjólasýningu á milli aldursflokka. Þetta er klárlega krúttlegasta hjólamót ársins.“