Karlmaður um fimmtugt lést í Árborg fyrr í dag þegar banaslys varð á byggingarsvæði þar.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi féll maðurinn niður af nýbyggingu og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi og fer lögreglan með rannsókn málsins.