Nokkur fjöldi fólks er samankominn neðarlega á Hverfisgötu, þar sem ríkisstjórnin kom saman til fundar í morgun.
Fólkið er þar í því skyni að mótmæla ríkisstjórninni eftir tilraun yfirvalda í gær til að flytja palestínska drenginn Yazan Tamimi úr landi.
Ljósmyndari mbl.is er á vettvangi og hér fylgja nokkrar myndir frá mótmælum morgunsins.
Fólkið stendur á Hverfisgötu handan girðingar sem lögregla setti upp í morgunsárið.
mbl.is/Karítas
Lokað hefur verið fyrir umferð um Hverfisgötu á milli Lækjargötu og Ingólfsstrætis vegna mótmælanna.
mbl.is/Karítas
Mótmælin hafa sprottið upp í kjölfar tilraunar yfirvalda til að flytja palestínska drenginn Yazan Tamimi úr landi.
mbl.is/Karítas
Fyrir utan ríkisstjórnarfundinn við Hverfisgötu. Ekki er víst hvenær honum lýkur.
mbl.is/Karítas