Tvö umferðaróhöpp og þjófnaður úr verslun

Ekki urðu slys á fólki.
Ekki urðu slys á fólki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvö umferðaróhöpp urðu í gærkvöldi, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Ekki urðu þó slys á fólki.

Tilkynnt var um þjófnað úr verslun í miðborginni. Var einn handtekinn síðar um kvöldið í tengslum við málið.

Þá barst lögreglu tilkynningar um ökumenn að reykspóla, annars vegar í Kópavogi og hins vegar í Breiðholti. Báðir farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði.

Þá var nokkuð um tilkynningar vegna ölvaðra einstaklinga fyrri part kvölds.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert