Innkalla paté

Sveitapaté með bragði af svörtum trufflum.
Sveitapaté með bragði af svörtum trufflum. Ljósmynd/Aðsend

Hyalin ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Sveitapaté með bragði af svörtum trufflum.

Ástæða innköllunar er sú að varan inniheldur ofnæmis- og óþolsvaldana hveiti og heslihnetur án þess að þeir komi fram í lista yfir innihaldsefni á leyfilegu tungumáli. Varan ber merkingar á bæði frönsku og ensku, en ofnæmis- og óþolsvaldarnir koma ekki fram á ensku merkingunum.

Tekið er fram, að vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur sé hættulegur fyrir einstaklinga sem séu með ofnæmi fyrir hveiti og/eða heslihnetum.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Godard - Chambon & Marrel
  • Vöruheiti: Terrine campagnarde au jus de truffe noire aromatisée
  • Geymsluþol: Best fyrir dags. 24/05/2027
  • Strikamerki: 3461951001503
  • Nettómagn: 180 g
  • Framleiðandi: SAS Godard-Chambon & Marrel, BP40072, Route de Salviac, 46300 GOURDON
  • Framleiðsluland: Frakkland

Nánar hér.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert