Þyrla frá Landhelgisgæslunni aðstoðar nú lögregluna á Suðulandi í aðgerðum við Reynisfjall sem liggur við Vík í Mýrdal. Þetta staðfesti Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Lögreglan gat ekki veitt frekari upplýsingar um aðgerðina að svo stöddu.
Þess má þó geta að leit að Illes Benedek Incze sem saknað hefur verið frá aðfaranótt sunnudags hefir staðið yfir á svæðinu.