Lögreglan var með mikinn viðbúnað á gatnamótum Sæbrautar og Frakkastígs fyrir skömmu.
Að sögn sjónarvotts stöðvaði lögregla bifreið og voru þrír ungir menn látnir stíga út á meðan vopnaðir lögreglumenn leituðu í ökutækinu.
Á vettvangi voru minnst þrjár lögreglubifreiðar.
Ekki náðist í lögregluna við vinnslu fréttarinnar.