Lögreglu hefur borist myndefni frá vegfarendum sem óku um Krýsuvíkurveg, á milli Vallahverfis í Hafnarfirði og Vigdísarvallavegar 15. september á milli kl. 13 og 18, sama dag og tíu ára stúlka beið þar bana. Faðir stúlkunnar er grunaður um að hafa banað henni.
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar, segir að myndefnið sé ekki yfirfarið og getur því ekki sagt til um af hversu miklu gagni það komi. Segir hann ómögulegt að segja hversu langan tíma tekur að yfirfara myndefnið enda ekki enn vitað hversu mikið myndefni hefur eða mun skila sér.
Faðir stúlkunnar er ekki talinn hafa verið undir áhrifum er stúlkunni var banað. Niðurstöður úr sýnatöku hafa þó ekki borist.
Sögusagnir um að manndrápið tengist skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi hafa verið bornar undir lögreglu sem segir engar staðreyndir um slíkt vera til staðar til að byggja á.
Grímur hvatti almenning til að setja sig í samband við lögreglu hafi það upplýsingar um málið sem það telur að byggja megi á. Engar slíkar ábendingar hafa enn borist.
Grímur segir að alltaf séu að koma í ljós frekari og betri upplýsingar um aðdraganda og atburðarásina sem leiddi til dauða stúlkunnar en lögregla heldur spilunum þétt að sér og ræðir til að mynda ekki hvort og þá hvaða vopni hafi verið beitt.
Sigurður Fannar Þórsson, faðir stúlkunnar, er sá eini sem er með stöðu sakbornings í málinu. Grímur segir lítið annað að segja um málið í dag. Því vindi eðlilega fram og sé komið í ákveðið ferli eins og slíkar rannsóknir geri.