Elínborg Una Einarsdóttir
Rannsókn á andláti 10 ára stúlku sem fannst látin við Krýsuvíkurveg á sunnudagskvöld miðar þokkalega áfram. Ekki hefur farið fram geðmat á föður stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa banað henni.
„Rannsókninni miðar þokkalega og við höldum henni bara áfram,“ segir Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar, spurð út í rannsókn á andlátinu.
Á fimmtudaginn auglýsti lögregla eftir myndefni frá vegfarendum sem óku um Krýsuvíkurveg, á milli Vallahverfis í Hafnarfirði og Vigdísarvallavegar á milli kl. 13 og 18, sama dag og stúlkan fannst látin.
Spurð hvort að lögreglunni hafi borist mikið myndefni segir Elín: „Við erum búin að fá ábendingar og það er bara verið að vinna úr þeim.“
Hún bætir þó við að engar nýjar upplýsingar hafi borist en fólk er enn hvatt til að senda lögreglu ábendingar ef það er með einhverskonar myndefni eða annað sem það telur skipta máli.
RÚV greindi í gær frá því að faðir stúlkunnar sem grunaður er um að hafa banað henni hafi verið metinn sakhæfur samkvæmt bráðabirgðageðmati.
Spurð hvort hún geti staðfest þær upplýsingar segir Elín: „Það á eftir að fara fram mat í þessu.“