Mikill viðbúnaður vegna leikfangabyssu

Talsverður viðbúnaður var vegna málsins. Mynd úr safni.
Talsverður viðbúnaður var vegna málsins. Mynd úr safni. mbl.is/Ari

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um einstaklinga sem sáust um á bifreið með loftbyssu. 

Talsverður viðbúnaður var vegna málsins og fann lögregla bifreiðina eftir skamma leit. Í ljós kom að um leikfangabyssu hafi verið að ræða.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.

Líkamsárás og fíkniefnasala

Nokkuð var um að ökumenn hafi verið stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Maður var handtekinn vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna og er hann vistaður í fangaklefa á meðan málið er rannsakað.

Einn var handtekinn í heimahúsi og vistaður fangaklefa grunaður um líkamsárás.

Þá var lögregla kölluð til vegna einstaklings sem réðist að starfsfólki hótels í miðbænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert