Norðlægri eða breytilegri átt er spáð í dag. Á morgun er útlit fyrir hægan vind og bjart veður um mestallt land.
Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Á þriðjudag er spáð norðanátt með éljum á Norður- og Austurlandi og kólnandi veðri.
„Er að sjá að það verði svipað veðurlag fram eftir vikunni,“ segir í hugleiðingunum.