Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögregluna á Norðurlandi eystra á Bakkafirði fyrr í dag.
Þetta staðfestir Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra, í samtali við mbl.is.
Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.