Vegagerðin varar við snjókomu á fjallvegum og vetrarfærð á norðaustanverðu landinu á morgun.
„Gengur í strekkings norðlæga átt í nótt og fer að snjóa á fjallvegum um norðaustanvert landið eftir hádegi á morgun.
Því má búast við vetrarfærð á þeim slóðum, þá helst á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Fjarðarheiði, Öxi og jafnvel einnig Fagradal. Styttir upp á miðvikudag,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.