„Ég er einn af löngum lista fólks sem kærir sig ekki um það að vinna fyrir þingflokk Pírata,“ segir Atli Þór Fanndal, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, en hann hefur látið af störfum sem samskiptastjóri þingflokks Pírata.
Hann segir í samtali við mbl.is að hann sé ekki búinn að ákveða hvort hann muni kjósa Pírata í næstu kosningum þó að það sé líklegt.
Hann segir Pírata ekki hafa sýnt honum sömu væntumþykju og hann hefur sýnt Pírötum.
Eins og mbl.is hefur greint frá þá hefur óánægja ríkt meðal sumra pírata eftir landsþing flokksins í byrjun mánaðar. Á þinginu var kosin ný framkvæmdastjórn og stefnu- og málanefnd.
Fjórir af fimm aðalmönnum eru nýir í stjórninni. Meðal annars hefur óánægjan snúið að meintri aðkomu starfsmanna þingflokks að framboðum til stjórnar.
„Ég las hjá ykkur að þingflokksformaður hefði sagt opinberlega að ný stjórn væri réttkjörin, þannig þið vitið væntanlega meira um þetta en ég. Ég veit ekki til hvers fólk þarf að lýsa því yfir í fjölmiðlum,“ segir Atli, spurður hvort að ákvörðunin um að hætta hafi eitthvað haft að gera með kosninguna í framkvæmdastjórn.
Þér finnst ný stjórn þá ekki vera réttkjörin?
„Jú. Ég styð nýja stjórn hundrað prósent og mun alltaf styðja réttkjörna stjórn en hingað til hefur maður ekki þurft að lýsa því yfir því það er svona „default“ afstaða gagnvart kosningum að það gilda reglur og þeim er ekki breytt eftir á,“ segir Atli en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Hann segir ekki ákveðið hvort að hann muni kjósa Pírata í næstu kosningum en að honum sé annt um flokkinn.
„Ég mun ekki skilja alfarið við flokkinn. Hvort ég ætla að kjósa hann í komandi kosningum, veit ég ekki alveg. Jú, jú. Örugglega, ég er bara ekki alveg búinn að gera upp hug minn varðandi það,“ segir hann aðspurður.
„Mér þykir vænt um þessa hreyfingu. Þó að það hafi ekki alltaf verið þannig að þessi hreyfing hafi getað sýnt mér sömu væntumþykju þá þykir mér vænt um þessa hreyfingu.“
Uppfært klukkan 19.45
Upphaflega var haft eftir Atla: „Ég mun skilja alfarið við flokkinn.“ Þetta er ekki rétt og átti þarna að standa: „Ég mun ekki skilja alfarið við flokkinn.“ Þetta hefur verið leiðrétt.