Hjónin létust vegna langvarandi veikinda

Bolungarvík.
Bolungarvík. mbl.is

Andlát hjónanna sem fundust látin á heimili sínu í Bolungarvík 27. maí er ekki talið hafa borið að með saknæmum hætti. Orsökin var langvarandi veikindi þeirra beggja.

Þetta kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar á Vestfjörðum en skýrsla með niðurstöðu réttarmeinafræðings sem annaðist réttarkrufningu hjónanna hefur borist lögreglunni.

Annað þeirra hafði sést utandyra nokkrum dögum áður en þau fundust látin á heimilinu. Ekki var hægt að ákvarða nákvæman dánartíma þeirra.

„Rannsókn málsins verður því hætt og það tilkynnt með venjubundnum hætti,“ segir lögreglan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert