Staðan sé Íslandi til skammar

Félögin segja að mál er varða launaþjófnað og slæman aðbúnað …
Félögin segja að mál er varða launaþjófnað og slæman aðbúnað verkafólks oft koma á borð félaganna. Ljósmynd/Steinunn Ásmundsdóttir

Sjö verkalýðsfélög hafa gefið frá sér yfirlýsingu vegna þáttar Kveiks í gærkvöldi sem fjallaði um misneytingu og mögulegt vinnumansal á íslenskum vinnumarkaði.

Í yfirlýsingunni segir að hið opinbera geri ekki nóg til að sporna við misneytingu á vinnumarkaði og segja félögin stöðuna í þessum málaflokki vera Íslandi til skammar. 

„Mikið er um alvarleg brot gagnvart verkafólki og er erlent verkafólk í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Algengt er að laun og kjör séu undir lágmarkskjörum og of oft gengur erfiðlega að fá laun greidd,“ segir í tilkynningunni.

Brot gegn húsaleigulögum algeng

Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Verkalýðsfélag Bolungarvíkur, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Sandgerðis og Verkalýðsfélag Vestfirðinga senda frá sér yfirlýsinguna.

Félögin telja ástæðu til að árétta að mál af þeim toga sem fjallað var um í þættinum í sambandi við launaþjófnað og slæman aðbúnað verkafólks komi reglulega á borð félaganna.

„Brot gegn húsaleigulögum eru algeng, oft eru vistarverur óboðlegar, gjald fyrir húsnæði óeðlilega hátt og framkoma gegn starfsfólki slæm,“ segir í tilkynningunni.

Vilja að eftirlitið sé hert

Þá segja félögin að eftirlit af hálfu hins opinbera skorti verulega og að afleiðingar af brotum gegn réttindum launafólks séu af skornum skammti.

„Þá er rétt að árétta sérstaklega að líkt og fram kom í þættinum gera opinberir aðilar samninga við fyrirtæki án þess að hafa nokkuð eftirliti með kjörum eða aðbúnaði starfsfólks þess aðila sem samið er við.

Félögin skora á stjórnvöld að herða eftirlit og setja vinnu og fjármagn í þennan málaflokk þegar í stað enda er núverandi staða landinu til skammar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert