Upplýsingafundur með íbúum Voga í tengslum við jarðhræringar á svæðinu verður haldinn klukkan 20 í kvöld. Á fundinum munu m.a. fulltrúar Veðurstofunnar og Umhverfisstofnunar vera með erindi og sitja fyrir svörum.
Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur í samstarfi við Sveitarfélagið Voga boða til fundarins.
Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal, Tjarnargötu 2, Vogum. Hægt verður að fylgjast með beinu streymi hér fyrir neðan: