Segja rannsókn lögreglu hafa skapað réttaróvissu

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Blaðamannafélag Íslands lýsir furðu sinni á yfirlýsingu lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um að rannsókn á byrlunar- og símamálinu hafi verið felld niður. Segir BÍ yfirlýsingu lögreglunnar hvorki vera í samræmi við niðurstöðu embættisins í málinu né almennar starfsskyldur þess.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Blaðamannafélags Íslands.

Greint var frá því í dag að lög­regl­an á Norður­landi eystra hefði fellt niður málið. Kom það fram í langri yfirlýsingu sem lögreglan birti á Facebook. 

Ekki gert til að grafa undan trausti

Segir BÍ að yfirlýsing lögreglunnar sé ekki til þess fallin að eyða framangreindum vafa og endurheimta það traust sem fyrri framganga embættisins í málinu hefur grafið undan.

„Í yfirlýsingunni, sem fá ef nokkur fordæmi eru fyrir í íslenskri réttarframkvæmd, felst ekki hlutlæg greinargerð um lyktir málsins heldur er þar þvert á móti staðhæft að „allir sakborningar í málinu gætu hafa sýnt af sér atferli sem getur flokkast undir brot á [228. og 229. gr. almennra hegningarlaga]“,“ segir í yfirlýsingu stjórnarinnar.

Segir þar að rannsóknin hafi verið tilefnislaus og fagnar félagið því að henni sé nú loks lokið.

Muni aðstoða hlutaðeigandi félagsmenn við að leita réttar síns

„Líkt og BÍ hefur bent á frá upphafi rannsóknarinnar var aldrei grundvöllur til hennar enda beindist hún að þeirri háttsemi blaðamanna að taka við upplýsingum frá heimildarmönnum um samfélagslega mikilvæg málefni og miðla þeim til almennings með ábyrgum hætti. Í því felst ekki refsiverð háttsemi blaðamanna heldur þvert á móti stjórnarskrárvarin frumskylda blaðamanna í lýðræðislegu þjóðfélagi,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni.

Segir stjórnin að um leið og BÍ fagni því að málinu sé lokið lýsi félagið þungum áhyggjum af því að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra skuli um margra ára skeið hafa haft blaðamenn til rannsóknar fyrir að sinna starfi sínu.

Víðtæk fælingaráhrif

Segir í tilkynningunni að auk þeirra beinu og verulegu áhrifa sem rannsóknin hafi haft á líf og störf þeirra blaðamanna sem í hlut áttu hafi rannsóknin skapað réttaróvissu um störf allra starfandi blaðamanna á Íslandi og haft víðtæk fælingaráhrif.

„Þótt það sé von BÍ að þetta hafi ekki verið eitt af markmiðum lögreglu með rannsókninni hefur framganga hennar í málinu gert það erfitt að útiloka með öllu að sú sé raunin.“

Þá tekur stjórnin það fram að félagið muni aðstoða hlutaðeigandi félagsmenn við að leita réttar síns í málinu kjósi þeir að leita hans og jafnframt leggja mat á hvort og þá hvernig brugðist verði við málinu af hálfu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka