Flutti mann á sjúkrahús vegna fjórhjólaslyss

Þyrlan var kölluð út upp úr hádegi í dag.
Þyrlan var kölluð út upp úr hádegi í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út laust eftir hádegi í dag til að sækja slasaðan mann við Hagabraut á Gíslholtshring í Rangárþingi ytra. Maðurinn slasaðist í fjórhjólaslysi.

Þetta segir Rannveig Brynja Sverrisdóttir, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.

Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en Rannveig segist aðspurð ekki geta sagt til um líðan mannsins. Málið sé í rannsókn hjá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert