Hundruð manns tóku þátt í Laufskálarétt

Laufskálarétt fór fram í dag.
Laufskálarétt fór fram í dag. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Laufskálarétt í Hjaltadal, stærsta stóðrétt landsins, fór fram í dag í Skagafirði og hundruð manns tóku þátt.

Bergur Gunnarsson réttarstjóri segir daginn hafa gengið vel.

„Þetta gekk prýðilega vel, veðrið frábært og ljómandi stemning yfir þessu. Allt gekk samkvæmt áætlun,“ segir hann í samtali við mbl.is.

Bergur Gunnarsson á Narfastöðum er réttarstjóri.
Bergur Gunnarsson á Narfastöðum er réttarstjóri. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

500 hross

Hann segir að hundruð manns hafi farið í Kolbeinsdal til þess að sækja hrossin en alls var rekið um 500 hross með folöldum. 

Um kvöldið spilar svo hljómsveit á dansleik fyrir sveitunga og einnig er ball á Sauðárkróki fyrir ungu kynslóðina.

Það er alltaf líf og fjör í sveitinni.
Það er alltaf líf og fjör í sveitinni. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert