Vegfarandinn látinn

Vegfarandi sem ekið var á rétt eftir miðnætti á Sæbraut við Vogabyggð er látinn.

Þetta staðfestir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í morgun sakaði ökumanninn ekki.

Að sögn lögreglu er ekki unnt að greina nánar frá tildrögum slyssins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert