Kona á fertugsaldri lést á Sæbraut

Banaslys - andlát -
Banaslys - andlát - mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vegfarandinn sem lést í umferðarslysi á Sæbraut aðfaranótt sunnudags var kona á fertugsaldri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en ekki er unnt að greina frá nafni konunnar að svo stöddu.

Lögreglunni barst tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Sæbraut við Vogabyggð rétt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudagsins þar sem ekið hafði verið á gangandi vegfaranda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert