Línan tekin úr rekstri vegna óhapps

Suðurnesjalína 1 verður tekin úr rekstri frá miðnætti til kl. …
Suðurnesjalína 1 verður tekin úr rekstri frá miðnætti til kl. 7 í fyrramálið. Ljósmynd/Landsnet

Suðurnesjalína 1 verður tekin úr rekstri á miðnætti í kvöld fram til klukkan 7 í fyrramálið. Óhapp varð þegar grafið var í jarðstreng í Hamranesi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. 

Nóttin verður nýtt í að skoða skemmdir á línunni og vinna að viðgerðum. 

Á meðan verður rafmagn á Suðurnesjum tryggt með eyjakeyrslu, þar sem virkjanir á Reykjanesskaga munu sjá svæðinu fyrir raforku. 

Segir í tilkynningunni að ef allt gangi samkvæmt áætlun ættu íbúar og fyrirtæki ekki að finna fyrir truflunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert