Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir vitnum að atviki þegar bifreið rakst á barn við Hafnarstræti á Ísafirði síðdegis á föstudag. Lögreglan óskar einnig eftir að ná tali af ökumanninum.
Þetta segir í færslu sem lögreglan birti á Facebook um málið. Tekið er fram að barnið hafi ekki hlotið alvarlega áverka.
„Föstudaginn 27. september, um klukkan 16:45, var bifreið ekið afturábak úr bifreiðastæði við Hafnarstræti 5 á Ísafirði. Það vildi svo óheppilega til að bifreiðin rakst á barn sem var að ganga yfir gangbraut sem var fyrir aftan bifreiðina. Barnið hlaut ekki alvarlega áverka. Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir vitnum að atvikinu. Einnig óskar lögreglan eftir að ná tali af ökumanni bifreiðarinnar sem vitni eru sammála um að hafi verið silfurlituð fólksbifreið,“ segir í tilkynningunni.
„Ef einhver býr yfir myndefni úr öryggismyndavélum af umræddu svæði óskar lögreglan einnig eftir að fá að sjá það efni. Ábendingar berist í síma 444-0400 eða í tölvupósti á netfangið vestfirdir@logreglan.is,“ segir enn fremur.