Stærsti skjálfti ársins í Mýrdalsjökli

Jökulsprungur marka yfirborð Mýrdalsjökuls.
Jökulsprungur marka yfirborð Mýrdalsjökuls. mbl.is/RAX

Jarðskjálfti upp á 3,7 varð í Goðabungu, nálægt Austmannabungu í Mýrdalsjökli laust fyrir klukkan 6 í morgun.

Skjálftinn er sá stærsti á þessu ári í jöklinum en í febrúar varð þar skjálfti sem mældist 3,4 að stærð.

Annar minni skjálfti fylgdi á eftir skömmu síðar í Goðabungu í morgun. Samkvæmt óyfirförnum tölum Veðurstofu Íslands var hann 2,4 að stærð.

„Við erum að fylgjast með því sem er að gerast,“ segir Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, og bætir við að þessi skjálftavirkni sé ekkert óvenjuleg. Ekki sé þörf á að hafa stórar áhyggjur. Hann segir að skjálftarnir gætu tengst jökulhlaupinu sem er að ljúka í Skálm og jarðhita á svæðinu.

40 jarðskjálftar á Reykjanesskaga

Um 40 jarðskjálftar hafa mælst síðustu tólf tímana á Reykjanesskaga, norðvestur af Kleifarvatni. Allt hafa þetta verið smáskjálftar, að sögn Bjarka.

Seinnipartinn í gær varð þar skjálfti, 3,6 að stærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert