Ólafur Jóhann nýr framkvæmdastjóri Herjólfs

Ólafur Jóhann Borgþórsson.
Ólafur Jóhann Borgþórsson. K100

Ólafur Jóhann Borgþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Herjólfs. 

Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta, en þar er vísað í tilkynningu frá stjórn Herjólfs ohf.

„Eftir mat á umsóknum, viðtöl við umsækjendur og umsagnir aðila hefur stjórn Herjólfs ohf. ákveðið samhljóða að ráða Ólaf Jóhann Borgþórsson í starf framkvæmdastjóra félagsins og mun hann hefja störf 1. janúar nk.

Ólafur er 43 ára að aldri og er fæddur í Vestmannaeyjum. Hann útskrifaðist með embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og hefur starfað sem prestur frá árinu 2007 á höfuðborgarsvæðinu. Ólafur Jóhann mun flytja búferlum til Vestmannaeyja,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert