„Þetta er bara alveg hræðilegt“

13 hafa látist í umferðarslysum á árinu.
13 hafa látist í umferðarslysum á árinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrettán hafa látið lífið í umferðarslysum það sem af er ári en kona á fertugsaldri lést á Sæbraut aðfaranótt sunnudags.

Ekki hafa fleiri látist í umferðarslysum á einu ári í sjö ár en árið 2015 létust fimmtán.

„Þetta er bara alveg hræðilegt og í hvert skipti sem kemur frétt af banaslysi þá finnur maður til,“ segir Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra við mbl.is.

Hún segir að þetta séu áföll í umferðinni sem verða ekki aftur tekin.

„Ég veit að við þurfum að leggja ennþá meiri áherslu á að koma í veg fyrir slys hvort sem það eru alvarleg slys eða banaslys. Það hefur verið áherslumál í samgöngukerfinu um langt árabil en það er alveg ljóst að þessi háa tíðni á yfirstandandi ári gefur tilefni til þess að við setjumst sérstaklega yfir þessum málum,“ segir Svandís.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert