Ekið var á átta ára dreng á gatnamótum Urðarbrunns og Úlfarsbrautar í Úlfársárdal í morgun.
Drengurinn var á hlaupahjóli á leið yfir götuna þegar áreksturinn varð.
Var hann í kjölfarið fluttur á slysadeild.
Talið er að hann hafi mögulega lærbeinsbrotnað að sögn Valgarðs Valgarðssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni.