Eldur kom upp í bifreið við Stuðlaháls í Árbæ í kvöld og varð ökumaður hans fljótt var, kom sér út úr bifreiðinni og hafði samband við slökkvilið sem kom von bráðar á vettvang.
Að sögn vakthafandi varðstjóra var ekki um mikinn eld að ræða og gekk greiðlega að slökkva.