Netflix hækkar verð á Íslandi

Netflix hækkar áskriftarverð á Íslandi.
Netflix hækkar áskriftarverð á Íslandi. AFP

Streymisveitan Netflix hækkar verð áskrifta á Íslandi frá og með deginum í dag.

Nýju verðin á þeim þremur áskriftarleiðum sem standa til boða verða eftirfarandi:

  • Basic: 9,99 evrur, eða um 1.492 krónur, á mánuði.
  • Standard: 14,99 evrur, eða um 2.238 krónur, á mánuði.
  • Premium: 20,99 evrur, eða um 3.133 krónur, á mánuði.

Endurspegli gæði þjónustunnar

Segir í tilkynningu frá talsmanni Netflix á Íslandi að uppfærð verð endurspegli aukið framboð kvikmynda, sjónvarpsþátta, leikja og gæða þjónustu.

Munu verðbreytingarnar taka gildi í dag meðal nýrra áskrifenda en frá og með 4. október munu uppfærð verð byrja að taka gildi hjá núverandi áskrifendum í samræmi við rukkunarferli hvers og eins.

Mun áskrifendum berast tilkynning í tölvupósti einum mánuði áður en verðbreytingin gengur í gegn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert