Þrír í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnamáls

Lögregla gerði húsleitir á höfuðborgarsvæðinu og lagði hald á nokkurt …
Lögregla gerði húsleitir á höfuðborgarsvæðinu og lagði hald á nokkurt magn fíkniefna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrír voru í dag úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur á grundvelli rannsóknarhagsmuna í fíkniefnamáli. 

Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Fór lögregla fram á gæsluvarðhald yfir þremenningunum sem voru handteknir í gær í þágu rannsóknarinnar.

Hélt lögregla sömuleiðis í húsleitir á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við málið og lagði hald á nokkuð magn fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert